|
Alcoa er leiðandi afl í þróun og rannsóknum á hólfaskiptum jarðvegsbindikerfum og hefur kynnt fjölmargar endurbætur og vörunýjungar, þróað aðferðafræði og nýstárlegar lausnir, auk þess sem þrautreyndar aðferðir fyrirtækisins hafa sannað sig sem langtímalausnir í einstökum og erfiðum verkefnum. Alcoa leggur metnað sinn í að bjóða aðeins vörur og lausnir í hæsta gæðaflokki. Geoweb® einingarnar eru framleiddar úr hágæða pólýetýlenefni til að tryggja hámarksstyrk samskeyta og heildargæði kerfisins. Að auki er allt framleiðsluferlið vottað samkvæmt ISO 9001:2000, sem tryggir jöfn gæði framleiðslunnar.
Geoweb® kerfið er sérhönnuð tæknilausn, sem felur í sér net samtengdra hólfa sem binda jarðveg og viðhalda jafnvægi. Geoweb kerfið býður nýstárlegar lausnir á erfiðustu jarðvegsverkefnum, fyrir brekku- og strandvarnarkerfi, þyngdardreifingu og jarðvegsbindingu.
|