Lattix

Lattix er norskt fyrirtæki sem framleiðir eftirgefanlega brotstaura úr áli sem notaðir eru fyrir ljósastaura, umferðarljós og umferðarskilti stór og smá, og byggir þá á Lattix® masturskerfinu. Fyrirtækið stefnir að því að verða leiðandi á markaðnum og hefur fjárfest verulega í því skyni. Framleiðsla þeirra stenst ströngustu kröfur Evrópustaðals EN12767 NE3 120 km.

Þróunarvinna er öll gerð í náinni samvinnu við virtar stofnanir og opinbera aðila í Noregi. Lattix var þátttakandi í gerð Evrópustaðals á brotstaurum.

Markmið fyrirtækisins er að framleiða bestu brotstaura sem völ er á, staura sem standast öll veðurskilyrði og alla gæðastaðla.

 

Lattix Home Site