|
Sapa Pole Products er hluti af sænska álframleiðandanum Sapa Group sem er einn stærsti framleiðandi á hlutum úr áli í heiminum. Sapa Pole Products hefur verið í framleiðslu á ljósastaurum í meira en 45 ár. Í verksmiðjunni sem er staðsett í Drunen í Hollandi eru framleiddir um 70.000 ljósastaurar á ári af mismunandi gerðum og hæð frá þremur upp í 15 metra. Framleiðsluferill hefur fengið CE vottun samkvæmt framleiðslu kröfum EN40-6 og eru prófaðir samkvæmt öryggiskröfum um eftirgefanleika EN-12767 og hafa staðist eftirtaldar prófanir:
- 100,NE3 / 100,LE3 / 100,HE2
- 100.NE2 / 100.LE2
- 100.NE1 / 100.LE1
- 70.NE3
- 70.NE2
- 35.NE3

|