|
Transport Industries var stofnað 1968 í Bandaríkjunum og er framleiðandi á umferðaröryggisvörum og starfa samkvæmt ISO 9001 staðli. Þeir eru vel þekktir fyrir einfaldar, ódýrar og snjallar lausnir á flóknum vandamálum. Þar má nefna "Brake-Safe" skiltastoðir og "Pole-Safe" eftirgefanlegar boltafestingar fyrir ljósastaura og umferðarljós. Þeirra framleiðsla hefur að mestu verið ætluð á Bandaríkjamarkað og verið prófuð samkvæmt stöðlum AASHTO (sambærilegt og EN-12899) og FHWA prófunarstaðall NCHRP 350 (sambærilegt og EN-12767). Unnið er að því að fá Evrópskar viðurkenningar.

|